Sunday, November 11, 2007

Tekjur sjávarútvegs hvers sveitafélags

Upp er komin sú staða að sveitafélög á suðurlandi og suðurnesjum hrópa nú hver á eftir öðrum að þau eigi rétt á orkunni á því landi sem tilheyri þeim og að ekki verði sú orka seld nema hún skili sér í tekjum fyrir bæjarfélagið. Manni dettur helst í hug kappsemi íbúa þegar gefins eru bolir merkt hinum ýmsu fyrirtækjum landsins...þar sem nú hlaupa sveitastjórnir til og vilja fá eitthvað fyrir sinn snúð. Hvernig er þá með þær tekjur sem verða til í hverju bæjarfélagi, eiga þau bæjarfélög þá ekki að fá þær tekjur samkvæmt þessu? Allar tekjur ríkisins sem verða til í Eyjum, ættu þær þá ekki að fara til Eyjamanna? Nei ég bara spyr svona barnalega þegar Grindvíkingar og Ölfusbúar ætla núna að stoppa alla orkunýtingu á þeirra landi......

Monday, March 26, 2007

Tossa de Mar

22.júní til 7.júlí

Það er nauðsynlegt að kynna sér vel það sem maður er að kaupa. Ég bókaði hótel og var í góðri trú um að hafa bókað rétt. Þegar vinkona Hildar fór út til að hitta foreldra sína út í Tossa þá ætlaði hún að kanna þetta og kom þá fyrst í ljós heimilisfang hótelsins sem var annað en staðsetining þess á kortum. Hins vegar virðist sem það séu fleiri hótel sem hafa slík heimilisföng en m.v. nánari skoðun virðist sem þetta kort hafi verið rétt.


Því læt ég fylgja með mynd:)
Ég hlakka mikið til og ekki verra að taka Ísabellu með sér sem mun líklega hlaupa um eins og kýrnar á vorin hehe við Hildur verðum bara í sandölum með sódavatn með lime og sólheimabros í sólinni :)

Thursday, February 8, 2007

Ísland úr leik og margt fleira


Þá er það komið á hreint. 8. sætið er staðreynd. Nú er bara að sjá hvað verður á næsta móti þegar menn hafa styrkt vörnina því það virtist vera það eina sem var að....ég er nú ekki alveg sammála þessu.

Í fyrsta lagi má segja að vörnin var ekki nógu góð og er ég sammála því.

Í öðru lagi þá er stærðin á sóknarmönnum ekki vandamálið, menn sem skora yfir 10 mörk í leik og eru 1,90m á hæð þurfa ekki að gráta í koddann vegna smæðar.

Í þriðja lagi þá er haf og land á milli þeirra leikmanna sem geta spilað vörn og sókn eða bara annað hvort. Þarna tel ég hundinn grafinn.

Skiptingar eru of margar(þó það hvíli menn) en þær geta líka orsakað að menn missa taktinn við leikinn og eru sífellt að gíra sig upp aftur og aftur...
Við Hildur horfðum töluvert á þessa leiki en besta atriðið átti Davíð Þór Óskarsson frændi sem kom í heimsókn með hund sem gerði þarfir sínar útum alla íbúð!!!! Þökkum Davíð kærlega fyrir gott innlit :)

Monday, January 29, 2007

Ísland- Danmörk


Held að Danir taki þetta!


Af hverju held ég það? Jú því það eru allir alltof sigurvissir, menn byrjaðir að hugsa um hvort Pólverjar vinni Rússa og svo framvegis. Mitt gisk er að Danir taka þetta og Íslendingar hreinlega ráði ekki við gríðarlega góða markvörslu Dana.

Saturday, January 20, 2007

Liverpool-Chelsea

Ísland sigrar


-Þorrablót í kvöld


Miðar sem okkur áskotnaðist á síðustu stundu munu sjá til þess að Mr. Biggs og Hillary séu á leið á Selfoss á alvöru sveita-þorrablót í íþróttahúsinu.

Ég vil að auki spá fyrir leikjum næstu daga:

Ísland sigrar Ástralíu, Úkraínu og tapar svo fyrir Frökkum. Margir myndu segja að þetta væri örugg spá en Úkraína hefur öflugra lið en síðast og má alls ekki vanmeta það. Hins vegar getur landsliðið farið strax heim ef þeir sigra Ástrala ekki með meira en 5 marka mun...því þeir skíttöpuðu gegn varaliði Skjern í vikunni svo þetta lið kæmist ekki langt ef allt er eðliðilegt.

Wednesday, January 17, 2007

Ný síða

Þá er bara að byrja skrifa....