Thursday, February 8, 2007

Ísland úr leik og margt fleira


Þá er það komið á hreint. 8. sætið er staðreynd. Nú er bara að sjá hvað verður á næsta móti þegar menn hafa styrkt vörnina því það virtist vera það eina sem var að....ég er nú ekki alveg sammála þessu.

Í fyrsta lagi má segja að vörnin var ekki nógu góð og er ég sammála því.

Í öðru lagi þá er stærðin á sóknarmönnum ekki vandamálið, menn sem skora yfir 10 mörk í leik og eru 1,90m á hæð þurfa ekki að gráta í koddann vegna smæðar.

Í þriðja lagi þá er haf og land á milli þeirra leikmanna sem geta spilað vörn og sókn eða bara annað hvort. Þarna tel ég hundinn grafinn.

Skiptingar eru of margar(þó það hvíli menn) en þær geta líka orsakað að menn missa taktinn við leikinn og eru sífellt að gíra sig upp aftur og aftur...
Við Hildur horfðum töluvert á þessa leiki en besta atriðið átti Davíð Þór Óskarsson frændi sem kom í heimsókn með hund sem gerði þarfir sínar útum alla íbúð!!!! Þökkum Davíð kærlega fyrir gott innlit :)